Hreindýr
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hreindýr (fræðiheiti: Rangifer tarandus) eru hjartardýr sem finna má víða á norðurhveli jarðar. Þau eru einstaklega vel aðlöguð kulda og snjóþyngslum að vetrarlagi. Andstætt öllum öðrum hjartardýrum bera bæði kynin horn. Kvenkyns hreindýr nefnist simla (eða hreinkýr), og karlkyns hreindýr nefnist hreinn (eða hreintarfur). Oftast eru notaðar styttingarnar tarfur og kýr.
Hreindýr | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Skógarhreindýr í Kanada | ||||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Rangifer tarandus (Linnaeus, 1758) | ||||||||||||||||
Hreindýr má finna á Íslandi, Noregi, norðurhluta Svíþjóðar og Finnlands, á Svalbarða, á norðursvæði evrópska hluta Rússlands þar á meðal Novaya Zemlya, í Asíu hluta Rússlands allt til Kyrrahafs, í Norður-Ameríku, á Grænlandi, í Kanada og Alaska.
Tamin hreindýr er aðallega að finna í Norður-Skandinavíu og Rússlandi (bæði í evrópska hlutanum og í Síberíu). Villt hreindýr er að finna í Norður-Ameríku og á Grænlandi. Hreindýr í Norður Ameríku og á Grænlandi eru villt en einu núlifandi villtu hreindýrin í Evrópu er að finna á nokkrum stöðum hátt til fjalla í Suður-Noregi. Íslensku hreindýrin eru afkomendur taminna norskra hreindýra þó svo að þau séu nú villt.