Hvítasunnudagur
helgidagur kristinnar kirkju og lögboðinn frídagur á Íslandi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hvítasunnudagur (áður fyrr stundum nefndur hvítdrottinsdagur, píkisdagur eða pikkisdagur) er hátíð í kirkjuári kristinnar kirkju. Hann er 49. dagurinn eftir páskadag og tíundi dagurinn eftir uppstigningardag. Forngrískt heiti hans er πεντηκοστή [ἡμέρα] (pentekostē [hēmera]) sem merkir fimmtugasti (dagur). Dagsins er minnst sem þess dags þegar heilagur andi kom yfir lærisveinana og aðra fylgjendur Jesú eins og lýst er í Postulasögunni.