Játvarður 1.
From Wikipedia, the free encyclopedia
Játvarður 1. (17. júní 1239 – 7. júlí 1307), einnig þekktur sem Játvarður skankalangi og Skotasleggja (enska: Edward Longshanks; Hammer of the Scots), var konungur Englands frá 1272 til 1307. Hann hefur verið talinn mun hæfari konungur en bæði faðir hans og sonur, kom á ýmsum umbótum og átti þátt í að móta enska þingið.