James Taylor
bandarískur söngvari og gítarleikari / From Wikipedia, the free encyclopedia
James Vernon Taylor (f. 12. mars 1948) er bandarískur söngvari, lagahöfundur og gítarleikari. Hann gaf út fyrstu breiðskífuna sína árið 1968, en hlaut fyrst frægð fyrir lagið „Fire and Rain“ árið 1970. Plöturnar hans hafa selst í yfir 100 milljón eintökum sem gerir hann að einum af söluhæstu tónlistarmönnum sögunnar. Á árunum 1977 til 2007 seldust allar plöturnar hans í yfir milljón eintökum. Hann komst efst á bandaríska Billboard 200 vinsældalistann með Before This World árið 2015. Taylor er sexfaldur Grammy-verðlaunahafi og var vígður inn í frægðarhöll rokksins árið 2000.
Staðreyndir strax Upplýsingar, Fæddur ...
James Taylor | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | James Vernon Taylor 12. mars 1948 (1948-03-12) (76 ára) Boston, Massachusetts, BNA |
Störf | Söngvari · lagahöfundur |
Ár virkur | 1966–núverandi |
Stefnur | Mjúkrokk · þjóðlagapopp · þjóðlagarokk |
Hljóðfæri | Rödd · gítar |
Útgefandi | Apple · Capitol · EMI · Warner Bros. · Columbia · SME · Hear Music · Fantasy |
Vefsíða | jamestaylor |
Loka