Kínamúrinn
Röð varnarmúra meðfram sögulegum norðurlandamærum Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Kínamúrinn (hefðbundin kínverska: 長城, einfölduð kínverska: 长城, Hanyu Pinyin: Chángchéng) er 21.196 kílómetra langur virkisveggur í Kína sem var byggður á Ming-tímanum sem spannar tímabilið frá 14. öld til þeirrar 16.. Hann var reistur til þess að vernda Kína gegn innrásum mongólskra og tyrkneskra ættflokka úr norðri og norðvestri. Þegar mest var stóðu rúmlega ein milljón hermanna vörð á múrnum. Kínamúrinn, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, er vinsæll ferðamannastaður í Kína og eitt þekktasta mannvirki landsins.