Kristján 10.
Konungur Danmerkur og Íslands (1870-1947) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Kristján X. (Christian Carl Frederik Albert Alexander Vilhelm af Glücksborg) (f. 26. september 1870, d. 20. apríl 1947) var konungur Danmerkur frá 1912 til 1947. Eftir að Ísland varð fullvalda ríki þann 1. desember 1918 var hann einnig konungur konungsríkisins Íslands. Eftir stofnun lýðveldis á Íslandi 1944 var hann einungis konungur Danmerkur. Hann var bróðir Karls Danaprins, sem varð Hákon VII. Noregskonungur 1905.
| ||||
Kristján X | ||||
Ríkisár | 1912-1947 (Danmörku) 1918-1944 (Íslandi) | |||
Skírnarnafn | Christian Carl Frederik Albert Alexander Vilhelm Glücksburg | |||
Kjörorð | Min Gud, mit land, min ære. | |||
Fæddur | 26. september 1870 | |||
Charlottenlund-höll | ||||
Dáinn | 20. apríl 1947 (76 ára) | |||
Amalíuborg | ||||
Gröf | Hróarskeldudómkirkja | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Friðrik 8. | |||
Móðir | Lovisa af Svíþjóð | |||
Drottning | Alexandrína af Mecklenburg-Schwerin (g. 1898) | |||
Börn |
Kristján var hávaxinn og þótti mynduglegur, alvörugefinn og skyldurækinn. Hann lauk stúdentsprófi 1889 og var fyrstur Danakonunga til að hafa slíkt próf. Því næst þjónaði hann í hernum, í ýmsum herdeildum. Hann varð krónprins 1906 þegar faðir hans, Friðrik VIII., varð konungur, og var sjálfur krýndur konungur að föður sínum látnum, árið 1912.
Kristján þótti nokkuð stjórnlyndur og upptekinn af virðingu konungdæmisins, og var því kannski ólíklegur til vinsælda á tímum lýðræðisvakningar í Evrópu. Hins vegar ávann hann sér djúpa virðingu þegna sinna og annarra með táknrænni forystu í báðum heimsstyrjöldunum og hafa fáir Danakonungar verið jafnvinsælir.