Kænugarður
Höfuðborg og stærsta borg Úkraínu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Kænugarður eða Kyjív (úkraínska: Kyjív eða Київ; rússneska: Kíev eða Киев) er höfuðborg og stærsta borg Úkraínu og jafnframt höfuðstaður Kænugarðsfylkis. Núverandi borgarstjóri er Vítalíj Klitsjkó. Eftir innrás Rússlands í Úkraínu 2022 höfðu 2 milljónir yfirgefið borgina í lok mars. Sumir sneru þó til baka.
Kænugarður
Київ (úkraínska) Kyjív | |
---|---|
Hnit: 50°27′00″N 30°31′24″A | |
Land | Úkraína |
Fylki | Kænugarðsfylki |
Stofnun | 482 |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Vítalíj Klitsjkó |
Flatarmál | |
• Borg | 839 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 179 m |
Mannfjöldi (1. janúar 2021) | |
• Borg | 2.952.301 |
• Þéttleiki | 3.299/km2 |
• Stórborgarsvæði | 3.475.000 |
Tímabelti | UTC+2 |
• Sumartími | UTC+3 |
Póstnúmer | 01xxx–04xxx |
Svæðisnúmer | +380 44 |
ISO 3166 kóði | UA-30 |
Vefsíða | kyivcity |
Borgin liggur í norðurhluta landsins við fljótið Danparfljót. Árið 2021 bjuggu tæpar 3 milljónir í borginni. Borgin er menningar-, iðnaðar- og vísindamiðstöð í Austur-Evrópu og er 7. fjölmennasta borg Evrópu. Rekja má byggð í borginni til 5. aldar.
Með þekktari stöðum í borginni er sjálfstæðistorgið Majdan Nezalezjností. Á lista UNESCO yfir menningarminjar eru Dómkirkja heilagrar Soffíu og klaustrið Petsjersk Lavra. Maríjínskyj-höll er önnur þekkt bygging.