Lantan
Frumefni með efnatáknið La og sætistöluna 57 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Lantan eða lantanum (úr grísku: λανθανω, „að vera falið“) er frumefni með efnatáknið La og er númer 57 í lotukerfinu. Lantan er silfurhvítt lantaníð sem kemur fyrir í nokkrum sjaldgæfum steindum oftast í sambandi við serín og önnur sjaldgæf frumefni. Lantan er mjúkur málmur sem oxast hratt í snertingu við loft.
Nánari upplýsingar Efnatákn, Sætistala ...
Yttrín | |||||||||||||||||||||||||
Barín | Lantan | Serín | |||||||||||||||||||||||
Aktín | |||||||||||||||||||||||||
|
Loka
Lantan er unnið úr steindum á borð við mónasít og bastnäsít með flókinni þrepaskiptri aðferð. Lantansambönd eru notuð mjög víða, meðal annars sem hvatar, íblöndunarefni í gler, í lampa, kveikjara og blys, glóskaut, sem sindurefni og fleira.