Laurent-Désiré Kabila
Forseti Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó (1939-2001) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Laurent-Désiré Kabila (27. nóvember 1939 – 16. janúar 2001) var kongóskur herleiðtogi, uppreisnarmaður og stjórnmálamaður. Frá sjöunda áratugnum barðist hann gegn einræðisstjórn Mobutu Sese Seko og tókst loks að steypa honum af stóli árið 1997 eftir fyrra Kongóstríðið. Kabila gerðist í kjölfarið forseti Austur-Kongó (Mobutu hafði breytt nafni landsins í Saír en Kabila breytti því í Lýðstjórnarlýðveldið Kongó) og sat í embætti frá maí 1997 þar til hann var myrtur af lífvörðum sínum í janúar árið 2001.[1] Eftir morðið á Kabila tók sonur hans, Joseph Kabila, við forsetaembættinu og gegndi því til ársins 2019.
Staðreyndir strax Forseti Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó, Forveri ...
Laurent-Désiré Kabila | |
---|---|
Forseti Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó | |
Í embætti 17. maí 1997 – 16. janúar 2001 | |
Forveri | Mobutu Sese Seko |
Eftirmaður | Joseph Kabila |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 27. nóvember 1939 Baudouinville (nú Moba), belgíska Kongó |
Látinn | 16. janúar 2001 (61 árs) Kinsasa, Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó |
Dánarorsök | Myrtur |
Maki | Sifa Mahanya |
Börn | Aimée, Jaynet, Joseph, Zoé |
Háskóli | Háskólinn í Dar es Salaam |
Starf | Hermaður, stjórnmálamaður |
Loka
Viðurnefni Kabila var Mzee, sem merkir „hinn gamli“ eða „hinn vitri“ á svahílí. Hann hefur í dag titil þjóðhetju í Austur-Kongó.