Lögmál heimspekinnar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Lögmál heimspekinnar (á latínu Principia philosophiae) er rit um heimspeki eftir franska heimspekinginn René Descartes. Ritið var samið á latínu og kom fyrst út árið 1644. Því var ætlað að koma í stað rita Aristótelesar um heimspeki og rita hefðbundinnar skólaspeki sem þá voru lesin í háskólum.
Árið 1647 birtist frönsk þýðing eftir Claude Picot undir titlinum Principes de philosophie. Þýðingin var unnin í samraði við Descartes. Í formálanum var bréf frá Descartes til Kristínar Svíadrottningar.