Norðurrín-Vestfalía
eitt af 16 sambandslöndum Þýskalands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Norðurrín-Vestfalía (þýska: Nordrhein-Westfalen) er fjórða stærsta sambandsland Þýskalands með rúmlega 34 þús km². Það er hins vegar fjölmennasta sambandslandið með 17,9 milljónir íbúa (2018). Ástæðan fyrir því er Ruhrhéraðið, en það er þéttbýlasta svæði Þýskalands og fjórða þéttbýlasta (eða fjölmennasta) svæði Evrópu. Norðurrín-Vestfalía liggur norðarlega í vesturhluta Þýskalands. Fyrir norðan er Neðra-Saxland, fyrir suðaustan er Hessen og fyrir sunnan er Rínarland-Pfalz. Auk þess er Holland fyrir vestan og Belgía fyrir suðvestan. Norðurrín-Vestfalía nær ekki að sjó. Hins vegar eru nokkrar hafnir þar, því stórfljótið Rín rennur í gegnum landið frá suðri til norðurs. Höfuðborgin er Düsseldorf.
Nánari upplýsingar Fáni Norðurrín-Vestfalíu, Skjaldarmerki Norðurrín-Vestfalíu ...
Fáni Norðurrín-Vestfalíu | Skjaldarmerki Norðurrín-Vestfalíu |
---|---|
Upplýsingar | |
Höfuðstaður: | Düsseldorf |
Stofnun: | 23. ágúst 1946 |
Flatarmál: | 34.110,26 km² |
Mannfjöldi: | 17.900.000 (2018) |
Þéttleiki byggðar: | 516/km² |
Vefsíða: | nrw.de |
Stjórnarfar | |
Forsætisráðherra: | Hendrik Wüst (CDU) |
Lega | |
Loka