Ríad
Höfuðborg Sádi-Arabíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ríad (arabíska: الرياض ar-Riyāḍ, enska: Riyadh) er stærsta borg og höfuðborg Sádi-Arabíu. Borgin er staðsett á miðjum Arabíuskaganum á stórri hásléttu. Íbúafjöldi borgarinnar rúmlega 4.260.000 manns (um 20% þjóðarinnar).
Borgarstjóri Ríad er Abdul Aziz ibn Ayyaf Al Migrin síðan 1998.