Reiði
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir yfirlit yfir aðrar merkingar „Reiði“
Reiði er geðshræring sem verður til vegna mikillar óánægju, pirrings eða ógnar sem menn skynja gagnvart sjálfum sér eða öðrum, annaðhvort í fortíð nútíð eða framtíð. Ógnin getur virst raunveruleg eða ímynduð. Oft er reiði viðbragð við hótunum, ranglæti, vanrækslu, niðurlægingu eða svika auk annars.
Reiði er hægt að tjá í verki eða með því að halda að sér höndum.