Rökyrðing
From Wikipedia, the free encyclopedia
Rökyrðing er, í rökfræði, einhver setning sem felur í sér ótvíræða staðhæfingu, óháð sanngildi staðhæfingarinnar. Rökyrðing er þá hvorki spurning né skipun, heldur fullyrðing á borð við:
- Grænn er litur.
- Jóhann „risi“ Pétursson var mjög stór maður.
- 2 + 2 = 4
- París er höfuðborg Frakklands.
Rökyrðingar þurfa ekki að vera sannar:
- Hvammstangi er höfuðborg Íslands.
- 10 + 10 = 100.
- Svín geta flogið.
Ekki allar málsgreinar eru rökyrðingar:
- Hvað er klukkan?
- Hvernig líður þér?
- 5 + 2