Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2023
From Wikipedia, the free encyclopedia
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2023 var haldin á Englandi árið 2023 eftir að úkraínska hljómsveitin Kalush Orchestra vann keppnina með lagið „Stefania“ í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2022. Vegna innrásar Rússa í Úkraínu tóku Englendingar sem lentu í 2. sæti 2022 að sér að halda keppnina. Hún var haldin í Liverpool Arena, nálægt Albert Dock í Liverpool.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2023 | |
---|---|
United by Music | |
Dagsetningar | |
Undanúrslit 1 | 9. maí 2023 |
Undanúrslit 2 | 11. maí 2023 |
Úrslit | 13. maí 2023 |
Umsjón | |
Vettvangur | Liverpool Arena Liverpool, Bretland |
Kynnar |
|
Framkvæmdastjóri | Martin Österdahl |
Sjónvarpsstöð | British Broadcasting Corporation (BBC) |
Vefsíða | eurovision |
Þátttakendur | |
Fjöldi þátttakenda | 37 |
Frumraun landa | Engin |
Endurkomur landa | Engin |
Taka ekki þátt | |
Kosning | |
Kosningakerfi | Hvert land gefur eitt sett (í undanúrslitum) eða tvö sett (í úrslitum) af 12, 10, 8–1 stigum til tíu laga. Á öllum sýningunum er einnig gefið eitt samanlagt sett af stigum frá löndum sem taka ekki þátt. |
Sigurvegari | Svíþjóð Loreen |
Sigurlag | „Tattoo“ |
2022 ← Eurovision → 2024 |
Söngkonan Diljá var valin til að taka þátt fyrir hönd Íslands með lagið „Power“. Hún endaði í 11. sæti í undanriðlinum með 44 stig.[1]
Sigurvegarinn var Svíþjóð með lagið „Tattoo“ eftir Loreen. Lagið var samið af Loreen ásamt Jimmy „Joker“ Thörnfeldt, Jimmy Jansson, Moa Carlebecker, Peter Boström og Thomas G:son. Sigurinn var sá sjöundi fyrir Svíþjóð sem gerir það, ásamt Írlandi, að sigursælasta landi keppninnar.