Þjóðfrelsisfylking sandínista
stjórnmálaflokkur frá Níkaragva, stofnaður 1961 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Þjóðfrelsisfylking sandínista (sp. Frente Sandinista de Liberación Nacional; FSLN) er sósíalískur stjórnmálaflokkur í Níkaragva. Meðlimir hans eru kallaðir sandínistar. Heitið er dregið af nafni byltingarmannsins Augusto César Sandino, sem leiddi andspyrnu gegn hernámi Bandaríkjamanna í Níkaragva á fjórða áratugi 20. aldar. Sandínistar réðu yfir Níkaragva frá 1979 til 1990 eftir að hafa leitt byltingu gegn ríkisstjórn einræðisherrans Anastasio Somoza Debayle. Forseti flokksins, Daniel Ortega, hefur verið forseti Níkaragva í annað skipti frá árinu 2007.[1]
Staðreyndir strax Þjóðfrelsisfylking sandínista Frente Sandinista de Liberación Nacional ...
Þjóðfrelsisfylking sandínista Frente Sandinista de Liberación Nacional | |
---|---|
Forseti | Daniel Ortega |
Stofnár | 19. júlí 1961; fyrir 62 árum (1961-07-19) |
Höfuðstöðvar | Managua |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
Sandínismi, kristileg vinstristefna, sósíalismi, vinstrilýðhyggja Áður: Marx-lenínismi |
Einkennislitur | Rauður |
Sæti á þjóðþinginu | |
Vefsíða | www.lavozdelsandinismo.com |
Loka