Skák
borðspil og hugaríþrótt / From Wikipedia, the free encyclopedia
Skák eða tafl er borðspil, sem tveir leikmenn (skákmenn) spila með 32 taflmönnum á taflborði, sem skipt er í átta reiti að lengd og átta að breidd, eða samtals 64 reiti. Þeir sem tefla kallast skákmenn, en þeir sem ná tilteknum árangri í viðurkenndum skákmótum geta hlotið titlana FIDE-meistari (FM, FIDE master), alþjóðlegur meistari (IM, international master) og stórmeistari (GM, grand master).
Heimildir eru um skák frá því um 600, en hún er talin upprunnin í norðvestanverðu Indlandi.
Tölvur vinna menn með yfirburðum í skák. Upphaflega þurfti sérsmíðaðar ofurtölvur, en nú duga hefðbundnar tölvur eða jafnvel snjallsímar. Gó er talinn erfiðari leikur, og til eru forrit sem vinna menn í þeim leik, og í seinni útgáfu af AlphaGo, Alpha Zero nær sama forritið yfirburðum í mörgum leikjum, þ.m.t. skák og gó. Sjá á síðunni um Gó (og kafla að neðan).