Slöngustjörnur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Slöngustjörnur er skrápdýr í ættinni Ophiuroidea. Þær eru skyldar krossfiskum og sæbjúgum. Í sjónum við Ísland búa þó nokkrar tegundir slöngustjarna. Í miðju slöngustjörnunnar er hringlaga diskur og út úr honum vaxa fimm langir og mjóir armar sem líkjast svipum. Flestar slöngustjörnur eru um 5 til 15 cm í þvermál en þó geta armarnir náð allt að 60 cm. Þessir armar eru stökkir og geta auðvaldlega brotnað. En armarnir eru einnig mjög sveigjanlegir og nota slöngustjörnurnar þá þil þess að skríða eftir sjávarbotninum. Þess má geta að þær komast hraðar yfir en krossfiskar. Slöngustjörnur hafa stjörnulaga munn undir miðjudisknum.
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
Slöngustjarna | ||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Slöngustjarna (Ophiura ophiura) | ||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||
| ||||||||
Einkennistegund | ||||||||
Ophiura ophiura Linnaeus, 1758 | ||||||||
Viðurkenndir bálkar | ||||||||
Subclass Myophiuroidea Matsumoto, 1915
| ||||||||
Slöngustjörnur eru ekki notaðar til manneldis, þó þær séu ekki eitraðar. En þær eru þó nokkuð vinsæl dýr í fiskabúr og þær geta auðveldlega þrifist í sjóbúrum.
Þar sem slöngustjörnurnar eru aðallega úr kalki er ekki auðvelt að éta þær. En seinbítur og hlýri éta mikið af slöngustjörnunum og ýsa og þorskur éta hana stundum.