Steingrímur Hermannsson
Forsætisráðherra Íslands 1983-1987 og 1988-1991 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Steingrímur Hermannsson (22. júní 1928 – 1. febrúar 2010) var verkfræðingur og forsætisráðherra. Hann gegndi einnig ýmsum öðrum ráðherraembættum á starfsævi sinni, auk þess að vera alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn árin 1971 - 1994 auk þess að vera skipaður seðlabankastjóri 1994 til 1998. Steingrímur var sonur Hermanns Jónassonar fyrrverandi formanns Framsóknarflokksins og forsætisráðherra.
Steingrímur Hermannsson | |
Fæðingardagur: | 22. júní 1928(1928-06-22) |
---|---|
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
Dánardagur: | 1. febrúar 2010 (81 árs) |
Flokkur: | Framsóknarflokkurinn |
Þingsetutímabil | |
1971-1979 | í Vestf. fyrir Framsfl. ✽ |
1979 | í Vestf. fyrir Framsfl. |
1979-1987 | í Vestf. fyrir Framsfl. ✽ |
1987-1991 | í Reykn. fyrir Framsfl. ✽ |
1991-1994 | í Reykn. fyrir Framsfl. |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
1974-1978 | 2. varaforseti efri deildar |
1978-1979 | Dóms- og kirkjumálaráðherra Landbúnaðarráðherra |
1980-1983 | Sjávarútvegs- og samgönguráðherra |
1983-1987 | Forsætisráðherra |
1987-1988 | Utanríkisráðherra |
1988-1991 | Forsætisráðherra |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis |
Steingrímur Hermannsson sat í stjórn fjölmargra stofnana, þar á meðal Millennium Institute í Arlington í Virginíu, Landvernd og Hjartavernd. Hann hefur hlotið heiðursverðlaunin California Institute of Technology's Alumni Distinguished Service Award (1986), Illinois Institute of Technology's Professional Achievement Award (1991), gullmedalíu frá Íþróttasambandi Íslands (1990) og Paul Harris Fellow frá Rotary-hreyfingunni í Reykjavík.
Steingrímur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1948, lauk B.Sc.-prófi í rafmagnsverkfræði frá Illinois Institute of Technology árið 1951 og M.Sc.-prófi frá California Institute of Technology árið 1952.
Steingrímur var tvíkvæntur og eignaðist sex börn, þrjú í hvoru hjónabandi. Guðmundur Steingrímsson, alþingis-, tónlistar- og blaðamaður, er sonur Steingríms.