Sólstöður
sú stund þegar sól fer lengst frá miðbaug / From Wikipedia, the free encyclopedia
Sólstöður eða sólhvörf er sú stund þegar sól fer lengst frá miðbaug himins til norðurs eða suðurs. Sólstöður eru tvisvar á ári, sumarsólstöður á tímabilinu 20.-22. júní, þegar sólargangurinn er lengstur og vetrarsólstöður 20.-23. desember, þegar hann er stystur. Breytileiki dagsetninganna stafar fyrst og fremst af hlaupársdögum. Nafnið sólstöður vísar til þess að sólin stendur kyrr, það er hættir að hækka eða lækka á lofti.