Weegee
From Wikipedia, the free encyclopedia
Weegee, réttu nafni Usher Fellig, (12. júní 1899 – 26. desember 1968) var ljósmyndari frá Zlothev í Austurríki þar sem nú heitir Úkraína. Hann var sonur gyðingahjóna sem fluttust með fjölskyldu sína til New York árið 1909 og settust að í innflytjendagettói á Manhattan, Lower East Side, en Weegee var þá tíu ára. Þar fékk hann nafnið Arthur Fellig.
Weegee er þekktur fyrir myndir sínar af myrkrahliðum New York-borgar svo sem af slysum, morðum, ránum, slagsmálum, eldsvoðum, skemmdarverkum, myndum af óvenjulegu fólki, dvergum, klæðskiptingum, drykkjusjúklingum og fötluðum sem og fyrir myndir sínar af frægu fólki, leikurum og stjórnmálamönnum, en hann mun vera fyrsti paparazzinn sem sögur fara af.