Írland
From Wikipedia, the free encyclopedia
Þessi grein er um eyjuna sjálfa. Fyrir sjálfstæða ríkið, sjá Írska lýðveldið. Fyrir hluta Bretlands, sjá Norður-Írland.
Írland (enska Ireland, gelíska Éire) er þriðja stærsta eyja Evrópu á eftir Stóra-Bretlandi og Íslandi. Hún liggur vestan við Stóra-Bretland og Írlandshaf en að Atlantshafi í vestri. Eyjunni er skipt upp annars vegar í Norður-Írland sem er hluti af Bretlandi og hins vegar Írska lýðveldið sem tekur yfir bróðurpartinn af eyjunni sunnanverðri. Íbúar Írlands eru um 7 milljónir (2022), þar af búa um 5,1 milljónir í Írska lýðveldinu og 1,9 milljónir á Norður-Írlandi .