Aþena
Höfuðborg Grikklands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Aþena (gríska Αθήνα (umritun Aþena, borið fram Aþína); Alþjóðlega hljóðstafrófið /a'θina/) er höfuðborg Grikklands og búa tæpar 4 milljónir manna í henni, ; 700.000 Í Aþenu sjálfri en á stórborgarsvæðinu eru 3,7 milljónir (2017). Hafnarborg hennar er Píreus.
Aþena
Αθήνα (gríska) | |
---|---|
Hnit: 37°59′03″N 23°43′41″A | |
Land | Grikkland |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Haris Doukas (PASOK) |
Flatarmál | |
• Borg | 38,96 km2 |
Hæsti punktur | 338 m |
Lægsti punktur | 70,1 m |
Mannfjöldi (2021) | |
• Borg | 643.452 |
• Stórborgarsvæði | 3.638.281 |
Tímabelti | UTC+2 |
• Sumartími | UTC+3 |
Póstnúmer | 10x xx, 11x xx, 120 xx |
Vefsíða | cityofathens |
Ólympíuleikarnir voru haldnir í Aþenu árið 2004 en voru fyrst haldnir þar þann 5. apríl 1896 í borginni Ólympíu á Grikklandi. Voru það fyrstu nútíma Ólympíuleikarnir eftir að þeir vorum afnumdir 393 e. Kr. vegna tengsla við heiðna trú.
Orðsifjar borgarinnar eru ekki ljósar. Í Grikklandi hinu forna skeggræddu menn um hvort gyðja borgarinnar hefði gefið nafn sitt borginni eða hvort gyðja borgarinnar dregið nafn af borginni. Nú er talið að gyðjan dragi nafn sitt af borginni. Helst er talið að heiti borgarinnar sé komið frá óindóevrópskum frumbyggjum svæðisins og merking óþekkt.