Emmanuel Macron
25. og núverandi forseti Frakklands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Emmanuel Jean-Michel Frédéric Macron (fæddur 21. desember 1977 í Amiens) er franskur stjórnmálamaður og núverandi forseti Frakklands.
Emmanuel Macron | |
---|---|
Forseti Frakklands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 14. maí 2017 | |
Forsætisráðherra | Édouard Philippe Jean Castex Élisabeth Borne Gabriel Attal |
Forveri | François Hollande |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 21. desember 1977 (1977-12-21) (46 ára) Amiens, Frakklandi |
Stjórnmálaflokkur | Endurreisn |
Maki | Brigitte Trogneux |
Bústaður | Élysée-höll, París |
Háskóli | Sciences Po École nationale d'administration |
Starf | Bankamaður, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Macron lærði heimspeki í Nanterre-háskóla í París og stjórnsýslu við skólanna Sciences Po og École nationale d'administration (ENA). Árin 2004 and 2008 vann hann í franska fjármálaráðuneytinu og gerðist síðar fjárfestir. Macron var meðlimur franska Sósíalistaflokksins 2006 til 2009 en varð síðar sjálfstæður frambjóðandi. Hann var skipaður efnahags- og fjármálaráðherra í annarri ríkisstjórn Manuel Valls árið 2014.
Macron stofnaði sinn eigin flokk En Marche! árið 2016. Hann er félagslega frjálslyndur og jákvæður gagnvart Evrópusamstarfi.
Árið 2017 bauð Macron sig fram í frönsku forsetakosningunum og komst í aðra umferð þar sem hann atti kappi við Marine Le Pen. Macron sigraði svo Le Pen í lokaumferðinni með um 65% atkvæða. Hann tók við embætti af François Hollande þann 14. maí, 2017.
Macron var endurkjörinn í forsetakosningum Frakklands árið 2022. Hann hlaut 58,2% atkvæðanna í seinni umferð kosninganna þann 24. apríl á móti Marine Le Pen.[1] Í þingkosningum þann 19. júní sama ár töpuðu stuðningsflokkar Macrons hins vegar meirihluta sínum á franska þinginu og völd Macrons á seinna kjörtímabili hans koma því til með að vera talsvert skert.[2]
Macron er giftur Brigitte Trogneux sem er 24 árum eldri en hann og var kennari hans í menntaskóla í Amiens.