Friðrik Friðriksson (prestur)
íslenskur prestur og stofnandi KFUM og K (1868-1961) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Séra Friðrik Friðriksson (f. 25. maí 1868 á Hálsi í Svarfaðardal – d. 9. mars 1961 í Reykjavík) var íslenskur prestur sem einkum er minnst fyrir aðild sína að stofnun ýmissa félagasamtaka sem höfðu mikil áhrif á þjóðlífið á Íslandi á 20. öld. Hann kom að stofnun KFUM og KFUK 1899, Knattspyrnufélagsins Vals 1911, Karlakórs KFUM sem síðar varð Karlakórinn Fóstbræður 1911, skátafélagsins Væringja 1913 og Knattspyrnufélagsins Hauka 1931.
Í samstarfi við KFUM og KFUK stofnaði hann sumarbúðirnar Vatnaskógur. Þar samdi hann mörg lög sem eru enn sungin í dag.
Stytta af honum eftir Sigurjón Ólafsson stóð við Lækjargötu í Reykjavík.