Knattspyrnufélagið Valur
fjölíþróttafélag að Hlíðarenda í Reykjavík / From Wikipedia, the free encyclopedia
Valur er íslenskt íþróttafélag sem hefur aðstöðu að Hlíðarenda. Valur teflir fram liðum í knattspyrnu, handknattleik og körfuknattleik og leika allir meistaraflokkar Vals í efstu deild bæði í karla- og kvennaflokki.
Núverandi tímabil | |||
Knattspyrnufélagið Valur | |||
Fullt nafn | Knattspyrnufélagið Valur | ||
Gælunafn/nöfn | Valsarar, Hlíðarendapiltar | ||
---|---|---|---|
Stytt nafn | Valur | ||
Stofnað | 11. maí 1911 | ||
Leikvöllur | N1 völlurinn | ||
Stærð | 1201 sæti, 2225 alls | ||
Stjórnarformaður | Lárus Sigurðsson | ||
Knattspyrnustjóri | Arnar Grétarsson (kk); Pétur Pétursson (kvk) | ||
|
Félagið var stofnað þann 11. maí árið 1911 af drengjum í K.F.U.M., að hluta til fyrir tilstilli séra Friðriks Friðrikssonar. Í fyrstu var Valur aðeins deild innan K.F.U.M. en síðar rofnuðu tengslin við K.F.U.M. Þrátt fyrir það minnast Valsmenn ávallt tengslanna við K.F.U.M. en einkunnarorð félagsins „Látið aldrei kappið bera fegurðina ofurliði“ eru fengin úr ræðu séra Friðriks sem hann hélt við vígslu fyrsta knattspyrnuvallar félagsins. Valur tók þátt í Íslandsmótinu í knattspyrnu karla í fyrsta sinn árið 1915 og varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn árið 1930. Alls hefur meistaraflokkur karla unnið Íslandsmótið í knattspyrnu karla 23 sinnum, síðast árið 2020. Kvennalið Vals vann Íslandmeistaratitil í fyrsta sinn árið 1978 en alls hefur meistaraflokkur kvenna unnið Íslandsmótið í knattspyrnu 14 sinnum, síðast árið 2023. Árið 1940 vann Valur fyrsta Íslandsmótið í handknattleik karla en félagið hefur ávallt átt góðu gengi að fagna í handknattleik bæði í karla og kvennaflokki. Valur varð Íslandsmeistari í handbolta kvenna í fyrsta sinn árið 1962.
Árið 1970 var körfuknattleiksdeild Vals stofnuð við sameiningu félagsins við K.F.R. Valur varð Íslandsmeistari í körfuknattleik karla í fyrsta sinn tíu árum seinna eða árið 1980. Á næstu þremur árum bættust þrír titlar í safnið. Bikarmeistaratitlar árin 1981 og 1983 og Íslandsmeistaratitill 1983. Fyrsti Íslandsmeistaratitill Vals í körfuknattleik kvenna vannst árið 2019 en sama ár varð liðið einnig bikarmeistari.
Valur lék til úrslita í Evrópukeppni meistaraliða í handbolta karla, tímabilið 1979-80, og er eina íslenska liðið sem náð hefur þessum áfanga. Enn fremur er Valur sigursælasta boltaíþróttafélag Íslands með 138 Íslandsmeistaratitla og bikarmeistaratitla í þremur vinsælustu boltaíþróttum landsins.[1] Árið 2019 var ár kvennaflokka Vals, en þá unnu allar kvennadeildir félagsins Íslandsmótið. Meistaraflokkar í handknattleik og körfuknattleik gerðu gott betur og unnu einnig bikarmeistaratitla en ekkert lið hafði áður afrekað að verða Íslandsmeistari í þessum þremur íþróttum á sama tíma, hvorki í karla- né kvennaflokki.[2] Kvennalið Vals endurtóku afrekið árið 2023.[3]