Gospeltónlist
From Wikipedia, the free encyclopedia
Gospel er tónlistarstefna sem gengur út á það að tala við Guð, lofa hann og biðja til hans í gegnum tónlist. Tónlist er og var stór partur af kristinni trú, og áður en gospel varð til sem slíkt þá voru sálmar sungnir í messum. Eftir að Evrópubúar fóru að eigna sér land í Norður-Ameríku voru sumir þeirra farnir að halda langar lofgjörðarstundir í staðinn fyrir hefðbundnar messur. Gospel skiptist í nokkra undirflokka; svart gospel, hvítt gospel eða Suður-gospel, nútíma gospel og samtíma gospel, gospel blús, bluegrass-gospel og kristileg sveita-tónlist.[1]