Hideki Tojo
Japanskur hershöfðingi og forsætisráðherra (1884-1948) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hideki Tōjō (東條 英機 á japönsku) (30. desember 1884 – 23. desember 1948) var hershöfðingi í her japanska keisaradæmisins. Hann var 27. forsætisráðherra Japans á meðan á seinni heimsstyrjöldinni stóð, frá 17. október 1941 til 22. júlí 1944. Sem forsætisráðherra fyrirskipaði hann árásina á Perluhöfn, en undirbúningur fyrir hana hafði hafist í apríl 1941, áður en Tojo tók við embætti. Eftir að stríðinu lauk var Tojo handtekinn og dæmdur til dauða fyrir stríðsglæpi Japana. Hann var hengdur þann 23. desember 1948.[1]
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Japans, Þjóðhöfðingi ...
Hideki Tōjō 東條 英機 | |
---|---|
Forsætisráðherra Japans | |
Í embætti 17. október 1941 – 22. júlí 1944 | |
Þjóðhöfðingi | Shōwa |
Forveri | Fumimaro Konoe |
Eftirmaður | Kuniaki Koiso |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 30. desember 1884 Tókýó, Japan |
Látinn | 23. desember 1948 (63 ára) Tókýó, Japan |
Dánarorsök | Hengdur |
Maki | Katsuko Ito (1890–1982) |
Börn | 3 synir, 4 dætur |
Háskóli | Japanski keisaraherháskólinn |
Starf | Herforingi |
Undirskrift |
Loka