Hvassahraun
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hvassahraun er jörð rétt austan við Vatnsleysuströnd og Kúagerði á norðanverðum Reykjanesskaga og heyrir til sveitarfélagsins Voga. Hvassahraun er norðan við Geldingahraun, austan við Rjúpnadalshraun og vestan við Selhraun og Almenninga. Jörðin er báðum megin við Reykjanesbraut.
- Fyrir grein um hraunbreiðuna sem kallast stundum Hvassahraun sjáið Afstapahraun
Komið hefur til tals að gera nýjan innanlandsflugvöll í staðinn fyrir Reykjavíkurflugvöll í Hvassahrauni sunnan Reykjanesbrautar.[1] Veðurstöð var rekin í Hvassahrauni 2001 til 2009 til að kanna aðstæður fyrir flug.