John Steinbeck
bandarískur rithöfundur (1902-1968) / From Wikipedia, the free encyclopedia
John Ernst Steinbeck yngri[1][2] (27. febrúar 1902 – 20. desember 1968) var bandarískur rithöfundur. Hann er einna þekktastur fyrir skáldsöguna Þrúgur reiðinnar (1939) sem fékk Pulitzer verðlaunin ári seinna, 1940. Önnur þekkt verk eftir hann eru Mýs og menn (1937) og Austan Eden (1952). Skáldsögur hans voru raunsæjar og gagnrýnar og fjölluðu oft um fátækt verkafólk. Hann var höfundur samtals 27 bóka, þar af skrifaði hann 16 skáldsögur og 5 smásagnasöfn. John Steinbeck hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels 1962.