Luis Arce
Forseti Bólivíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Luis Alberto „Lucho“ Arce Catacora (f. 28. september 1963) er bólivískur stjórnmálamaður og núverandi forseti Bólivíu. Hann var fjármálaráðherra Bólivíu á stjórnartíð Evo Morales forseta.[1] Hann var frambjóðandi Sósíalistahreyfingarinnar (MAS-IPSP) í forsetakosningum ársins 2020.[2] Samkvæmt útgönguspám lenti hann í fyrsta sæti í fyrri umferð kosninganna, sem fóru fram þann 19. október, með 52,4% atkvæða og nógu rúmt forskot á keppinauta sína til að sleppa við að kallað yrði til annarrar umferðar.[2]
Staðreyndir strax Forseti Bólivíu, Varaforseti ...
Luis Arce | |
---|---|
Forseti Bólivíu | |
Núverandi | |
Tók við embætti 8. nóvember 2020 | |
Varaforseti | David Choquehuanca |
Forveri | Jeanine Áñez |
Fjármálaráðherra Bólivíu | |
Í embætti 23. janúar 2006 – 24. júní 2017 | |
Í embætti 23. janúar 2019 – 10. nóvember 2019 | |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 28. september 1963 (1963-09-28) (60 ára) La Paz, Bólivíu |
Þjóðerni | Bólivískur |
Stjórnmálaflokkur | Sósíalistahreyfingin |
Maki | Jessica Graciela Mosqueira Martínez Lourdes Brigida Durán Romero |
Börn | 3 |
Háskóli | Æðri háskólinn í San Andrés Warwick-háskóli |
Undirskrift |
Loka