Singapúr
borgríki í Suðaustur-Asíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Singapúr (einfölduð kínverska: 新加坡共和国; pinyin: Xīnjiāpō Gònghéguó, malasíska: Republik Singapura; tamílska: சிங்கப்பூர் குடியரசு) er borgríki á eyju við suðurodda Malakkaskaga í Suðaustur-Asíu. Landið liggur sunnan við malasíska héraðið Johor og norðan við Riau-eyjar í Indónesíu. Nafnið er dregið af tveimur orðum úr sanskrít singa sem merkir „ljón“ og pura sem merkir „borg“. Singapúr gengur líka undir sínu gamla malasíska nafni Temasek. Landið er mjög þéttbýlt og borgin nær yfir svo til allt landsvæði þess. Land Singapúr hefur verið stækkað með landfyllingum í sjó.
Republic of Singapore 新加坡共和国 Republik Singapura சிங்கப்பூர் குடியரசு | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Majulah Singapura (malasíska) Áfram, Singapúr | |
Þjóðsöngur: Majulah Singapura | |
Höfuðborg | Singapúr |
Opinbert tungumál | enska, mandarín, malasíska, tamílska |
Stjórnarfar | lýðveldi |
Forseti | Tharman Shanmugaratnam |
Forsætisráðherra | Lawrence Wong |
Sjálfstæði | frá Malasíu |
• Aðskilnaður | 9. ágúst 1965 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
176. sæti 728,6 km² 1,4 |
Mannfjöldi • Samtals (2021) • Þéttleiki byggðar |
115. sæti 5.453.600 7.804/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2021 |
• Samtals | 600,063 millj. dala (38. sæti) |
• Á mann | 102.742 dalir (2. sæti) |
VÞL (2019) | 0.938 (11. sæti) |
Gjaldmiðill | singapúrdalur (SGD) |
Tímabelti | UTC+8 |
Þjóðarlén | .sg |
Landsnúmer | +65 |
Singapúr var ásamt suðurhluta Malakkaskaga hluti af Srivijaya á miðöldum og síðan Chola-veldinu. Árið 1587 brenndu Portúgalir byggðina til að slíta á tengsl Malakkaskaga við Soldánsdæmið Johor í suðri. Núverandi byggð í Singapúr var stofnuð af breska landstjóranum í Bengkulu-borg á Súmötru, Stamford Raffles. Breta vantaði höfn á sjóleiðinni til Kína. Eyjan heyrði þá aðeins að nafninu til undir soldáninn í Johor. Raffles stofnaði þarna fríhöfn og brátt tók íbúafjöldinn að vaxa mjög hratt. William Farquhar var gerður að landstjóra. Raffles sneri aftur árið 1822 en nýlendan var orðin illa þokkaður staður. Hann tók þá til hendinni, gerði nýtt skipulag (Jackson-skipulagið) og setti stjórnarskrá sem bannaði fjárhættuspil og þrælahald. Borgin óx enn á 19. öld og varð ein mikilvægasta hafnarborgin í heimshlutanum. Helstu viðskipti Singapúr fólust í umskipun. Japanir lögðu Singapúr undir sig eftir orrustuna um Singapúr 1942 og sýndu þar með fram á að Bretar gætu ekki alltaf varið lönd sín í Asíu. Eftir Síðari heimsstyrjöld fóru því íbúar Singapúr að krefjast sjálfstjórnar í auknum mæli. Fyrstu þingkosningar í Singapúr voru haldnar 1948 og landið fékk heimastjórn að hluta 1955. Margir töldu að Singapúr væri best borgið í sambandi við önnur ríki á Malakkaskaga og Singapúr tók því þátt í stofnun Malasíu 1963. Vaxandi þjóðernishyggja í Malasíu og ótti við að viðskiptaveldið Singapúr drægi mátt úr Kúala Lúmpúr varð til þess að forsætisráðherra Malasíu, Tunku Abdul Rahman, ákvað að reka Singapúr úr sambandsríkinu.
Singapúr er ein af mikilvægustu viðskiptaborgum heims, fjórða stærsta fjármálamiðstöð heims og fimmta mest notaða höfnin. Landið er eitt af Asíutígrunum fjórum ásamt Hong Kong, Suður-Kóreu og Tævan. Verg landsframleiðsla á mann með kaupmáttarjöfnuði er sú þriðja mesta í heimi, en landið er líka heimsmeistari í launaójöfnuði meðal þróaðra ríkja. Íbúar Singapúr eru um 5,5 milljónir, þar af 2 milljónir aðfluttra. 75% íbúa eru af kínverskum uppruna. Í landinu er þingræði að breskri fyrirmynd en frá 1959 hefur Aðgerðaflokkur alþýðunnar verið samfleytt við völd. Flokkurinn hefur dregið úr borgararéttindum og fjölmiðlafrelsi svo Singapúr er gjarnan talið vera flokksræði í reynd.