Tage Erlander
Forsætisráðherra Svíþjóðar (1901-1985) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Tage Erlander (13. júní 1901 – 21. júní 1985) var sænskur stjórnmálamaður úr Jafnaðarmannaflokknum sem var forsætisráðherra Svíþjóðar frá 1946 til 1969. Erlander átti lengstu embættistíð allra sænskra forsætisráðherra og var því oft kallaður „lengsti forsætisráðherra Svíþjóðar“. Þetta gælunafn vísaði bæði í langa embættistíð Erlanders og í eiginlega hæð hans, en Erlander var 192 cm á hæð. Erlander var einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu Svíþjóðar og er gjarnan talinn einn helsti hönnuður norræna velferðarkerfisins.[1][2]
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Svíþjóðar, Þjóðhöfðingi ...
Tage Erlander | |
---|---|
Forsætisráðherra Svíþjóðar | |
Í embætti 11. október 1946 – 14. október 1969 | |
Þjóðhöfðingi | Gústaf 5. Gústaf 6. Adólf |
Forveri | Per Albin Hansson |
Eftirmaður | Olof Palme |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 13. júní 1901 Ransäter, Svíþjóð |
Látinn | 21. júní 1985 (84 ára) Huddinge, Svíþjóð |
Þjóðerni | Sænskur |
Stjórnmálaflokkur | Jafnaðarmannaflokkurinn |
Maki | Aina Erlander (g. 1930) |
Háskóli | Lundarháskóli |
Undirskrift |
Loka