Tækni
From Wikipedia, the free encyclopedia
Tækni er breitt hugtak sem notað er um aðferðir lífvera til þess að nýta sér umhverfi sitt sér til framdráttar með sértækri þekkingu. Mannkynið hefur nýtt sér vísindin og verkfræði til þess að búa til ýmis konar verkfæri sem hafa breytt lífsskilyrðum á hverjum tíma. Saga tækniþróunar er nátengd sögu mannsins. Með tækni er átt við efnislega hluti eins og tæki, vélar og verkfæri, en hún á einnig við um óáþreifanlega hluti eins og kerfi, skipulag og aðferðir. Notkun nýrrar tækni er áberandi í læknisfræði, iðnaði, vísindum, fjarskiptum, flutningum og daglegu lífi fólks um allan heim.
Tækniþróun hefur oft haft mikil áhrif á þróun mannlegra samfélaga. Elsta dæmið um slíkt er þróun steinverkfæra í upphafi steinaldar[1] og þar á eftir þróun hæfileikans til að kveikja eld, sem varð til þess að mannsheilinn stækkaði og tungumálið varð til.[2] Fyrir bronsöld var hjólið fundið upp sem leiddi smátt og smátt til þróunar flóknari véla.[3] Tækninýjungar á sviði samskipta, eins og prentvélin, síminn og Internetið, áttu þátt í að skapa þekkingarhagkerfi.
Tækniþróun hefur mikil áhrif á efnahagsþróun og á stóran þátt í aukinni velmegun mannkyns, en getur líka haft neikvæð áhrif með mengun og náttúrueyðingu. Tækni getur valdið samfélagslegum skaða með því að auka atvinnuleysi vegna aukinnar sjálfvirkni.[4] Þetta hefur leitt til umræðna um hlutverk og notagildi tækninnar, siðfræði tækninnar og aðferðir til að draga úr neikvæðum afleiðingum tækniþróunar.[5] Ýmsar sögulegar hreyfingar, eins og lúddítar og anti-civ, hafa barist gegn framrás nýrrar tækni,[6] meðan aðrar hreyfingar, eins og transhúmanistar og tækniframfarasinnar, líta á tæknina sem frelsandi afl.[7] Oft gengur tæknileg nýsköpun út á að takast á við neikvæðar afleiðingar tækniþróunar, eins og notkun endurnýjanlegra orkugjafa í flutningum og iðnaði,[8] notkun erfðabreyttra jurta til að forðast jarðvegseyðingu,[9] og geimkönnun til að leita leiða til að lifa af hnattrænar hamfarir.[10]