Veðurstofa Íslands
Íslensk ríkisstofnun er sinnir veðurspám og veðurathugunum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Veðurstofa Íslands eða Veðurstofan er opinber stofnun sem annast meðal annars veðurþjónustu og útgáfu veðurspáa fyrir Ísland.
Auk þess að gefa út veðurspár, eru þar unnar rannsóknir á sviði veðurfræði og annarra fræðigreina er tengjast starfssviði hennar. Veðurstofan sér um viðvörunarþjónustu vegna veðurs, snjóflóða, jarðskjálfta, vatnafars og hafíss.[1] Starfsemi hennar skiptist í fjögur svið: eftirlit og spásvið, úrvinnslu og rannsóknasvið, athugana og tæknisvið og rekstrarsvið. [2] Stofnunin heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið[1].