Yoon Suk-yeol
13. og núverandi forseti Suður-Kóreu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Yoon Suk-yeol (hangúl: 윤석열; hanja: 尹錫悅; f. 18. desember 1960) er suður-kóreskur stjórnmálamaður og fyrrverandi saksóknari sem er núverandi forseti Suður-Kóreu. Hann vann nauman sigur í forsetakosningum landsins í mars árið 2022. Áður var Yoon ríkissaksóknari Suður-Kóreu frá 2019 til 2021. Sem saksóknari átti Yoon þátt í því að fá fyrrum forsetann Park Geun-hye dæmda seka fyrir valdníðslu.[1]
Staðreyndir strax Forseti Suður-Kóreu, Forsætisráðherra ...
Yoon Suk-yeol 윤석열 | |
---|---|
Forseti Suður-Kóreu | |
Núverandi | |
Tók við embætti 10. maí 2022 | |
Forsætisráðherra | Kim Boo-kyum Han Duck-soo |
Forveri | Moon Jae-in |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 18. desember 1960 (1960-12-18) (63 ára) Seúl, Suður-Kóreu |
Stjórnmálaflokkur | Alþýðuvaldsflokkurinn |
Maki | Kim Kun-hee (g. 2012) |
Háskóli | Þjóðarháskólinn í Seúl (LLB, LLM) |
Starf | Lögfræðingur, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka