Barein
ríki og eyjaklasi í Mið-Austurlöndum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Barein (arabíska: البحرين al-Baḥrayn), formlega Konungsríkið Barein (arabíska: مملكة البحرين Mamlakat al-Baḥrayn), er eyríki í Persaflóa úti fyrir strönd Sádi-Arabíu í vestri og Katar í suðri. Barein er lítill eyjaklasi með 51 náttúrulegri og 33 manngerðum eyjum, þar sem stærsta eyjan, Barein, nær yfir 83% af landi ríkisins. Landið tengist Sádi-Arabíu með vegbrú, Fahd-vegtengingunni, og í bígerð er að byggja brú til Katar einnig. Meira en helmingur af 1,5 milljón íbúum landsins eru ekki bareinskir að uppruna. Landið er aðeins 780 ferkílómetrar að stærð og er því þriðja minnsta land Asíu, á eftir Maldíveyjum og Singapúr. Manama er bæði höfuðborg landsins og stærsta borgin.
Konungsríkið Barein | |
مملكة البحرين Mamlakat al Bahrayn | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Baḥraynunā | |
Höfuðborg | Manama |
Opinbert tungumál | arabíska og enska |
Stjórnarfar | Konungsríki |
Konungur | Hamad bin Isa Al Khalifa |
Krónprins | Salman bin Hamad bin Isa Al Khalifa |
Forsætisráðherra | Salman bin Hamad bin Isa Al Khalifa |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
172. sæti 780 km² 0 |
Mannfjöldi • Samtals (2018) • Þéttleiki byggðar |
149. sæti 1.569.446 1.831/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 78,760 millj. dala (94. sæti) |
• Á mann | 52.129 dalir (19. sæti) |
VÞL (2018) | 0.838 (45. sæti) |
Gjaldmiðill | bareinskur dínar (BHD) |
Tímabelti | UTC+3 |
Þjóðarlén | .bh |
Landsnúmer | +973 |
Talið er að Barein hafi verið miðstöð Dilmunmenningarinnar í fornöld.[1] Síðar varð það hluti af ríkjum Parþa og Sassanída. Barein var lengi frægt fyrir perluveiði. Landið var eitt það fyrsta sem snerist til Íslam árið 628, þegar Múhameð spámaður var enn á lífi. Eftir að hafa verið undir arabískum yfirráðum um langt skeið lögðu Portúgalar það undir sig árið 1521 en þeir voru reknir burt af Abbas mikla sem lagði landið undir veldi Safavída árið 1602. Árið 1783 lagði Bani Utbah-ættbálkurinn eyjuna undir sig og síðan þá hefur Al Khalifa-fjölskyldan ríkt þar. Seint á 19. öld varð landið breskt verndarsvæði. Í kjölfar þess að Bretar drógu sig út úr heimshlutanum seint á 7. áratug 20. aldar lýsti Barein yfir sjálfstæði árið 1971. Landið var formlega lýst konungsríki árið 2002 en var áður emírsdæmi (furstadæmi).
Frá 2011 til 2013 stóð þar uppreisn meirihluta sjíamúslima gegn stjórninni sem hófst eftir Arabíska vorið.[2] Al Khalifa-fjölskyldan hefur verið sökuð um mannréttindabrot og ofbeldi gegn stjórnarandstæðingum. [3]
Barein var fyrsta landið Arabíumegin við Persaflóa þar sem olíulindir uppgötvuðust árið 1932.[4] Frá síðari hluta 20. aldar hefur efnahagur landsins byggst á fleiri þáttum, einkum banka- og ferðaþjónustu,[5] en eldsneytisútflutningur er enn helsti útflutningsvegur landsins og stendur undir 11% af vergri landsframleiðslu. Helstu vandamál landsins stafa af minnkandi olíu- og vatnsbirgðum og atvinnuleysi ungs fólks. Alþjóðabankinn skilgreinir Barein sem hátekjuland og það situr hátt á vísitölu um þróun lífsgæða. Barein er aðili að Sameinuðu þjóðunum, Samtökum hlutlausra ríkja, Arababandalaginu, Samtökum um íslamska samvinnu og Persaflóasamstarfsráðinu.