Bougainville
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sjálfstjórnarhéraðið Bouganville er sjálfstjórnarhérað innan Papúu Nýju-Gíneu. Það er norðvestan við Salómonseyjar. Það samastendur af samnefndri eyju, eyjunni Buka og ýmsum smáeyjum. Höfuðborgin er í dag Buka en Arawa verður hugsanlega höfuðstaðurinn í framtíðinni.[1]
Bougainville | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Friður, eining og framfarir | |
Þjóðsöngur: My Bougainville | |
Höfuðborg | Buka |
Opinbert tungumál | enska (opinbert) og tok pisin |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | John Momis |
Sjálfstæði | frá Papúu |
• Yfirlýst | 2002 |
• Atkvæðagreiðsla | 2019 |
Flatarmál • Samtals |
9.384 km² |
Mannfjöldi • Samtals (2011) • Þéttleiki byggðar |
259.358 /km² |
VÞL (2018) | 0.580 |
Gjaldmiðill | Papúskur kina (PGK) |
Tímabelti | UTC+11 |
Landsnúmer | +675 |
Árið 2011 bjuggu um 250.000 manns á eyjunum. Á eyjunum eru töluð fjöldamörg tungumál, bæði ástrónesísk mál og austurpapúsk mál. Margar pólýnesískar úteyjar heyra undir Bougainville þar sem pólýnesísk mál eru töluð. Því er tok pisin notað sem samskiptamál (lingua franca) og enska notuð sem opinbert mál. Landfræðilega eru bæði Bougainville og Buka hluti af Salómonseyjum, þótt þau séu ekki hluti af ríkinu Salómonseyjum. Áður fyrr voru eyjarnar þekktar sem Norður-Salómonseyjar.
Fólk hefur búið á eyjunum í að minnsta kosti 29.000 ár. Á nýlendutímanum var eyjunum stýrt af Þjóðverjum, Áströlum, Japönum og Bandaríkjamönnum á ólíkum tímum. Nafnið kemur hins vegar frá frönskum flotaforingja, Antoine de Bougainville, sem kom þangað 1768.[2]
Aðskilnaðarhreyfing hófst á Bougainville á 7. áratug 20. aldar og lýst var yfir stofnun Lýðveldisins Norður-Salómonseyja þegar Papúa Nýja-Gínea fékk sjálfstæði árið 1975. Næsta ár tók Papúa Nýja-Gínea yfir stjórn Bougainville. Borgarastríð 1988–1998 leiddi til dauða 20.000 manna. Helsta ástæða þess var deila um koparnámur. Friðarsamningarnir fólu í sér að Bougainville varð sjálfstjórnarhérað í upphafi 21. aldar. Árið 2019 var haldin kosning um hvort fólk vildi þar sjálfstæði eða halda tengslum við Papúu. Svo fór að 98% völdu sjálfsstæði. Héraðsstjórnin stefnir því að fullu sjálfstæði árið 2027.