Brigitte Bierlein
Austurrískur dómari / From Wikipedia, the free encyclopedia
Brigitte Bierlein (f. 25. júní 1949) er austurrískur dómari. Hún er fyrrum ríkissaksóknari við hæstarétt Austurríkis og hefur frá árinu 2018 verið forseti stjórnlagadómstóls landsins.
Staðreyndir strax Kanslari Austurríkis, Forseti stjórnlagadómstóls Austurríkis ...
Brigitte Bierlein | |
---|---|
Kanslari Austurríkis | |
Í embætti 3. júní 2019 – 7. janúar 2020 | |
Forseti stjórnlagadómstóls Austurríkis | |
Í embætti 22. febrúar 2018 – 3. júní 2019 | |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 25. júní 1949 (1949-06-25) (74 ára) Vín, Austurríki |
Þjóðerni | Austurrísk |
Stjórnmálaflokkur | Óflokksbundin |
Háskóli | Vínarháskóli |
Starf | Dómari |
Loka
Í lok maí árið 2019 skipaði Alexander Van der Bellen, forseti Austurríkis, Bierlein kanslara utanþingsstjórnar eftir að ríkisstjórn Sebastians Kurz sprakk í kjölfar hneykslismála. Áætlað var að hún yrði kanslari þar til nýjar kosningar voru haldnar í september.[1][2] Vegna langra stjórnarmyndunarviðræða gegndi hún embættinu fram í janúar 2020. Bierlein er fyrsta konan sem hefur orðið kanslari Austurríkis.[3]