Danmörk
land í Norður-Evrópu og eitt Norðurlandanna / From Wikipedia, the free encyclopedia
Danmörk (danska: Danmark; framburðurⓘ) er land í Norður-Evrópu sem ásamt Grænlandi og Færeyjum myndar Konungsríkið Danmörk. Danmörk er langfjölmennasti hluti konungsríkisins sem er einingarríki, en Grænland og Færeyjar hafa heimastjórn. Algengt er að undanskilja þau lönd þegar rætt er um Danmörku (til dæmis stærð og íbúafjölda). Danmörk er syðst Norðurlandanna og er suðvestan við Svíþjóð, sunnan við Noreg og norðan við Þýskaland þar sem einu landamæri Danmerkur eru.
Konungsríkið Danmörk | |
Kongeriget Danmark | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Forbundne, forpligtet, for Kongeriget Danmark (kjörorð konungsins) | |
Þjóðsöngur: Der er et yndigt land | |
Höfuðborg | Kaupmannahöfn |
Opinbert tungumál | Danska |
Stjórnarfar | Þingbundin konungsstjórn |
Konungur | Friðrik 10. |
Forsætisráðherra | Mette Frederiksen |
Stofnun | forsöguleg |
• Sameining | 10. öld |
• Stjórnarskrá | 5. júní 1849 |
• Konungsríkið Danmörk | 24. mars 1948 |
Evrópusambandsaðild | 1. janúar 1973 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
134. sæti 42.915,7 km² 1,6 |
Mannfjöldi • Samtals (2023) • Þéttleiki byggðar |
114. sæti 5.935.619 131/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2022 |
• Samtals | 416,568 millj. dala (53. sæti) |
• Á mann | 70.924 dalir (11. sæti) |
VÞL (2021) | 0.948 (6. sæti) |
Gjaldmiðill | Dönsk króna (kr) (DKK) |
Tímabelti | UTC+1 (+2 á sumrin) |
Ekið er | hægri megin |
Þjóðarlén | .dk |
Landsnúmer | +45 |
Árið 2013 náði Danmörk, að Grænlandi og Færeyjum meðtöldum, yfir 1419 eyjar sem eru stærri en 100 m². 443 af þeim hafa nöfn og 78 eru byggðar.[1] Danmörk sjálf samanstendur af Jótlandsskaga, sem gengur til norðurs út úr meginlandi Evrópu, og 406 eyjum. Stærsta eyjan er Sjáland þar sem höfuðborgin, Kaupmannahöfn, er. Á eftir koma Fjón, Vendsyssel-Thy og Amager. Landslag í Danmörku einkennist af tiltölulega flötu ræktarlandi, sandströndum og tempruðu loftslagi. Landið liggur að sjó að vestan, norðan og austan. Vestan megin eru Norðursjór og Vaðhafið, norðan megin er Skagerrak, en austan megin eru Kattegat, Eyrarsund og Eystrasalt. Sunnan megin á Danmörk 68 km löng landamæri að Þýskalandi við suðurenda Jótlands. Íbúar Danmerkur eru tæplega 6 milljónir, og af þeim búa 800.000 í höfuðborginni, Kaupmannahöfn (um 2 milljónir á höfuðborgarsvæðinu). Aðrar stórar borgir í Danmörku eru Óðinsvé á Fjóni, Árósar, Álaborg, Esbjerg, Randers, Kolding, Horsens og Vejle á Jótlandi.
Danmörk var áður mun víðáttumeira ríki en það er í dag. Konungsríkið er talið stofnað á 8. öld og varð brátt öflugt sjóveldi sem tókst á um yfirráð yfir Eystrasalti við nágrannaríki. Árið 1397 mynduðu konungsríkin Noregur, Danmörk og Svíþjóð Kalmarsambandið sem stóð þar til Svíþjóð klauf sig úr því árið 1523. Eftir það var talað um Dansk-norska ríkið eða Danaveldi, sem náði líka yfir Ísland, Noreg, Dönsku Vestur-Indíur og Dönsku Austur-Indíur. Danaveldi átti miklar lendur austan Eyrarsunds (Skán, Halland og Blekinge) og bæði héruðin Slésvík og Holtsetaland, auk þess sem landamærin náðu suður fyrir Hamborg þegar veldið var sem mest. Eftir röð ósigra á 17. öld gengu löndin austan Eyrarsunds til Svíþjóðar. Á nítjándu öld gekk Noregur úr konungssambandi við Danmörku og var þá um tíma undir sænska konunginum, og við uppgang Þýskalands á 19. öld missti Danmörk Holtsetaland og hluta Slésvíkur. Árið 1849 var einveldið lagt niður og þingbundin konungsstjórn tók við. Útflutningur á landbúnaðarafurðum efldist á síðari hluta 19. aldar. Árið 1933 lagði Kanslergade-samþykktin grunninn að því að gera Danmörk að velferðarríki með blandað hagkerfi. Danmörk var hlutlaus í fyrri heimsstyrjöld en Þjóðverjar hernámu landið í síðari heimsstyrjöld. Árið 1944 sagði Ísland sig úr konungssambandi við Danmörku sem hafði verið í gildi frá 1918. Árið 1973 varð Danmörk hluti af því sem í dag er Evrópusambandið. Færeyjar kusu hins vegar að standa utan þess og Grænland kaus að segja sig úr sambandinu árið 1982. Danmörk er með tvær undanþágur frá Evrópulögum, meðal annars hvað varðar gjaldmiðilinn, dönsku krónuna.
Danmörk er þróað ríki þar sem lífskjör eru með því besta sem gerist í heiminum. Landið er stofnaðili að Atlantshafsbandalaginu, Norðurlandaráði, Efnahags- og framfarastofnuninni, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu og Sameinuðu þjóðunum. Danmörk er hluti af Schengen-svæðinu. Danmörk á í nánu samstarfi við hin Norðurlöndin.