David Hume
skoskur heimspekingur (1711–1776) / From Wikipedia, the free encyclopedia
David Hume (26. apríl 1711 – 25. ágúst 1776)[1] var skoskur heimspekingur, hagfræðingur og sagnfræðingur og einn mikilvægasti hugsuður skosku upplýsingarinnar á 18. öld.
Vestræn heimspeki Heimspeki 18. aldar | |
---|---|
Nafn: | David Hume |
Fæddur: | 26. apríl 1711 |
Látinn: | 25. ágúst 1776 (65 ára) |
Skóli/hefð: | Raunhyggja |
Helstu ritverk: | Ritgerð um mannlegt eðli; Rannsókn á skilningsgáfunni; Ritgerðir um siðferði og stjórnmál; Rannsókn á siðgæðislögmálum; Saga Englands; Samræður um trúarbrögðin |
Helstu viðfangsefni: | þekkingarfræði, frumspeki, hugspeki, siðfræði, fagurfræði, trúarbrögð, hagfræði, stjórnmál |
Markverðar hugmyndir: | hughyggja um orsakalögmálið, aðleiðsluvandinn, greinarmunur á staðreyndum og gildum, forskriftarvandinn, kraftaverkavandinn |
Áhrifavaldar: | Cicero, Virgill, John Locke, George Berkeley, Francis Hutcheson, Isaac Newton, Pierre Bayle, Nicolas Malebranche, René Descartes |
Hafði áhrif á: | Immanuel Kant, Jeremy Bentham, Adam Smith, Charles Darwin, T.H. Huxley, John Stuart Mill, Bertrand Russell, Rudolf Carnap, Moritz Schlick, A.J. Ayer, W.V.O. Quine, J.L. Mackie, Friedrich A. von Hayek |
Venjulega er Hume talinn einn þriggja helstu málsvara bresku raunhyggjunnar en þó eru ekki allir á einu máli um hvernig eigi að túlka heimspeki hans. Sumir telja að Hume hafi fyrst og fremst verið efahyggjumaður en aðrir telja að kjarninn í heimspeki hans sé öðru fremur náttúruhyggja.[2]
Hume var undir miklum áhrifum frá raunhyggjumönnunum John Locke og George Berkeley en einnig frá ýmsum frönskumælandi höfundum eins og Pierre Bayle og mörgum enskumælandi hugsuðum og vísindamönnum, svo sem Isaac Newton, Samuel Clarke, Francis Hutcheson, Adam Smith og Joseph Butler.
Hume naut ekki mikilla vinsælda meðal samtímamanna sinna og var misskilinn af flestum þeirra. Hann fékk þó betri viðtökur á meginlandi Evrópu en í heimalandi sínu. Kirkjunnar menn höfðu ætíð horn í síðu Humes og komu að minnsta kosti tvisvar sinnum í veg fyrir að hann fengi ráðningu sem háskólakennari.
Eigi að síður hafði Hume þó nokkur áhrif bæði á samtímamenn sína og síðari tíma heimspekinga. Mestu munar ef til vill um áhrif Humes á prússneska heimspekinginn Immanuel Kant. Meðal annarra heimspekinga sem hafa verið undir áhirfum Humes má nefna Jeremy Bentham, John Stuart Mill, A.J. Ayer, Bertrand Russell og J.L. Mackie.