Fljótsdalur
Dalur í Múlaþingi á Austurlandi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Fljótsdalur er dalur á Fljótsdalshéraði á Austurlandi, kenndur við Lagarfljót, sem um hann rennur. Dalurinn er djúpur og breiður, veðursæll og snjóléttur.
Tveir af hæstu fossum landsins eru í dalnum, báðir yfir 100 m á hæð, Hengifoss í Hengifossá og Strútsfoss í Strútsá.
Dalurinn er víða vel gróinn en mun þó hafa verið grónari áður, fyrir Öskjugosið 1875. Víða eru þó birkiskógar og á síðustu árum hefur mikið verið gróðursett af lerki og furu og eru sumstaðar vaxnir upp allmiklir barrskógar.