Strútsfoss
From Wikipedia, the free encyclopedia
Strútsfoss er í Villingadal sem er inn af Suðurdal í Fljótsdal Fossinn er tvískiptur, neðri fossinn er um 100 metra hár og efri fossinn um 20 metrar. Neðan við fossinn rennur Strútsá í Strútsgili. Talið er að fossinn dragi nafn sitt af strýtulaga klettadröngum í gilinu. Strútsgil er samansett af basalthrauni, setlögum og má þar finna mikið af rauðum og gulbrúnum millilögum[1].