Frans frá Assisí
From Wikipedia, the free encyclopedia
Heilagur Frans frá Assisí (5. júlí 1182 [1] – 3. október 1226) var predikari frá Assisí í Úmbríu á Ítalíu sem boðaði meinlætalíf og höfnun veraldlegra gæða. Hann stofnaði reglu heilags Frans með leyfi Innósentíusar 3. páfa árið 1209. Munkar af þessari reglu voru nefndir „smábræður“ eða „betlimunkar“. 1211 stofnaði hann reglu Klörusystra ásamt heilagri Klöru frá Assisí sem var meðal fylgismanna hans. 1223 fékk hann sína fyrstu stigmötu (sem er fyrsta skráða tilvik um það fyrirbæri).