Jafnaðarmannaflokkurinn (Þýskaland)
Þýskur stjórnmálaflokkur / From Wikipedia, the free encyclopedia
Jafnaðarmannaflokkur Þýskalands (Sozialdemokratische Partei Deutschlands eða SPD á þýsku) er þýskur stjórnmálaflokkur. Flokkurinn var stofnaður árið 1863 og er því elsti starfandi stjórnmálaflokkur í Þýskalandi. Auk þess er flokkurinn eini starfandi flokkur sambandslýðveldisins Þýskalands sem var til í svipaðri mynd fyrir seinni heimsstyrjöldinna. Ásamt Kristilega demókrataflokknum er Jafnaðarmannaflokkurinn fjölmennasti stjórnmálaflokkur landsins og telur til sín um 404.000 meðlimi. Eftir seinna stríð var flokkurinn lengi eini stóri vinstriflokkurinn í landinu en þetta breyttist með stofnun flokksins Die Linke, sem hneigist lengra til vinstri.
Staðreyndir strax Jafnaðarmannaflokkur Þýskalands Sozialdemokratische Partei Deutschlands ...
Jafnaðarmannaflokkur Þýskalands Sozialdemokratische Partei Deutschlands | |
---|---|
Fylgi | 25,7%¹ |
Leiðtogi | Saskia Esken og Lars Klingbeil |
Varaleiðtogi | Sjá lista
|
Aðalritari | Kevin Kühnert |
Stofnár | 23. maí 1863; fyrir 160 árum (1863-05-23) |
Höfuðstöðvar | Willy-Brandt-Haus D-10911 Berlín |
Félagatal | 404.305 (2021)[1] |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
Jafnaðarstefna |
Einkennislitur | Rauður |
Sæti á sambandsþinginu | |
Sæti á sambandsráðinu | |
Sæti á Evrópuþinginu | |
Vefsíða | spd.de |
¹Fylgi í þingkosningum 2021 |
Loka