Kristján Þór Júlíusson
íslenskur stjórnmálamaður fæddur 1957 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Kristján Þór Júlíusson (f. 15. júlí 1957 á Dalvík) er fyrrum oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri.[1] Kristján Þór sat á Alþingi frá 2007 til 2021 og var 2. varaformaður Sjálfstæðisflokksins frá 2012 til 2013. Kristján Þór var heilbrigðisráðherra á árunum 2013 til 2017, menntamálaráðherra árið 2017 og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra frá 2017 til 2021. Þann 13. mars 2021 sagði hann í viðtali að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér í næsta prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og að hann ætlaði að hætta í stjórnmálum.
Staðreyndir strax Fæðingardagur:, Fæðingarstaður: ...
Kristján Þór Júlíusson (KÞJ) | |
Fæðingardagur: | 15. júlí 1957 (1957-07-15) (66 ára) |
---|---|
Fæðingarstaður: | Dalvík |
1. þingmaður Norðausturkjördæmis | |
Flokkur: | Sjálfstæðisflokkurinn |
Þingsetutímabil | |
2007-2009 | í Norðaust. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
2009-2013 | í Norðaust. fyrir Sjálfstfl. |
2013-2021 | í Norðaust. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
1998-2007 | Bæjarstjóri á Akureyri |
2012-2013 | 2. varaformaður Sjálfstæðisflokksins |
2013-2017 | Heilbrigðisráðherra |
2017 | Menntamálaráðherra |
2017-2021 | Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis |
Loka