Maður
mannapi af ættflokknum Homini og ættkvíslinni Homo / From Wikipedia, the free encyclopedia
Maður (fræðiheiti: Homo sapiens „hinn vitiborni maður“) er algengasta og útbreiddasta tegund fremdardýra á jörðinni. Helstu einkenni manna eru að þeir ganga uppréttir á tveimur fótum og þeir eru með afar þróaðan og flókinn heila sem hefur gert þeim kleift að þróa flókin verkfæri, tungumál og menningu. Vitsmunir og frjálsar hendur hafa leitt til þess að þeir nota fleiri verkfæri, og í meiri mæli, en nokkur önnur þekkt dýrategund. Menn eru sérstaklega leiknir í því að nýta sér samskiptakerfi til sjálfstjáningar og skoðanaskipta. Menn mynda samfélög og mannleg tengsl sem einkennast af gildum, venjum og siðum. Líkt og önnur fremdardýr eru menn forvitnir að eðlisfari. Forvitni og áhugi mannsins á að skilja og móta umhverfi sitt og skýra náttúrufyrirbæri hafa leitt til þróunar vísinda, heimspeki, trúarbragða og fleiri sviða þekkingar.
Maður Tímabil steingervinga: Chiban-nútími | ||||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Fullorðinn karl (til vinstri) og kona (til hægri). | ||||||||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||||||
Þéttleiki mannabyggðar á jörðinni. | ||||||||||||||||||||||
Sumir vísindamenn miða upphaf mannsins við það þegar ættkvíslin Homo kom fram á sjónarsviðið fyrir rúmum 2 milljónum ára, en almennt er heitið „maður“ notað um einu manntegundina sem enn er til, Homo sapiens, sem merkir „vitiborni maðurinn“. Homo sapiens er talinn hafa þróast út frá Homo heidelbergensis fyrir um 300.000 árum einhvers staðar við Horn Afríku. Hann breiddist síðan þaðan út um heiminn og ruddi öðrum tegundum frummanna úr vegi. Lengst af í sögu sinni hafa menn verið veiðimenn og safnarar en í Nýsteinaldarbyltingunni, sem hófst í Suðvestur-Asíu fyrir um 13.000 árum tóku menn upp landbúnað og fasta búsetu. Þegar samfélög manna stækkuðu urðu til flóknari stjórnkerfi og siðmenningarsamfélög risu og hnigu. Mannkyni hefur fjölgað stöðugt og fjöldi manna náði 8 milljörðum árið 2022.[1]
Líffræðileg fjölbreytni mannkyns ræðst meðal annars af erfðavísum og umhverfi. Þótt einstaklingar geti verið mjög ólíkir hvað varðar útlit, líkamsstærð og fleira, eru 99% af erfðavísum manna þeir sömu. Mestu erfðafræðilegu fjölbreytni manna er að finna í Afríku. Menn sýna tvíbreytni og þróa kyneinkenni við kynþroska sem verða grundvöllur flokkunar fólks í karla og konur. Konur geta orðið óléttar og ganga gegnum tíðahvörf og verða ófrjóar um 50 ára aldur. Fæðing barna er konum mjög erfið og hættuleg. Börn manna eru algerlega háð umönnun við fæðingu. Bæði karlar og konur annast börnin að jafnaði, en hefðbundin kynhlutverk eru mjög ólík eftir því hvaða samfélög eiga í hlut og taka auk þess sífelldum breytingum.
Menn eru alætur og fá næringu úr mjög fjölbreyttri fæðu úr dýra-, jurta- og svepparíkinu. Allt frá tímum Homo erectus hefur maðurinn getað kveikt eld og matreitt fæðu sína. Mennirnir eru eina dýrategundin sem kann að kveikja eld, sem matreiðir fæðu sína, klæðir sig og notar ýmsar aðrar tæknilegar aðferðir til að lifa af. Menn geta lifað allt að átta vikur án matar og þrjá til fjóra daga án vatns. Menn eru að mestu dagdýr og sofa að jafnaði sjö til níu tíma á sólarhring.
Framheilabörkur mannsheilans, sá hluti heilans sem tengist hugrænni getu, er stór og þróaður. Menn búa yfir mikilli greind, atburðaminni, sjálfsvitund og hugarkenningu. Mannshugurinn er fær um innsæi, hugsun, ímyndun, vilja og tilvistarhugmyndir. Þetta hefur gert manninum kleyft að þróa tækni með rökleiðslu og flutningi og uppsöfnun þekkingar milli kynslóða. Tungumál, list og viðskipti eru meðal þess sem einkennir manninn. Samskipti fólks á viðskiptaleiðum hafa breitt út atferli og úrræði sem veita fólki hlutfallslega yfirburði í lífsbaráttunni.