Paul Bocuse
From Wikipedia, the free encyclopedia
Paul Bocuse (11. febrúar 1926 – 20. janúar 2018)[1] var franskur matreiðslumaður sem er þekktur fyrir hágæða franska matargerð og lúxusveitingastaðinn L'Auberge du Pont de Collonges nærri Lyon. Staðurinn er með þrjár Michelin-stjörnur. Hann lærði hjá Eugénie Brazier og er einn af þeim frönsku matreiðslumönnum sem kenndir eru við nouvelle cuisine eða „nýju frönsku matargerðina“.
Alþjóðlega matreiðslukeppnin Bocuse d'Or sem haldin er í Lyon á tveggja ára fresti er kennd við hann. Hann átti sjálfur þátt í stofnun keppninnar árið 1987.