Pipar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Pipar eða svartur pipar (fræðiheiti: Piper nigrum) er ber piparjurtarinnar, klifurplöntu af piparætt. Jurtin gefur af sér ber sem eru þurrkuð og notuð heil eða möluð sem bragðsterkt krydd. Til er einnig rauður pipar, grænn pipar og hvítur pipar.