Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2010
From Wikipedia, the free encyclopedia
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2010 var 55. árlega söngvakeppnin. Hún var haldin í Telenor Arena í Ósló, Noregi dagana 25. - 29. maí 2010 þar sem Alexander Rybak vann keppnina árið 2009 með laginu „Fairytale“ (enska „Ævintýri“). Þetta var í þriðja skiptið sem Norðmenn halda keppninasíðan síðan árin 1986 og 1996. Undankeppnirnar voru haldnar 25. og 27. maí 2010 en úrslitin laugardaginn 29. maí 2010. Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) tilkynntu að atkvæðagreiðslukerfi, sem notast hafði verið við í undankeppnum síðustu tvö ár til að jafna skoðun dómnefndar við símakosninguna, yrði notað. Þrjátíu og níu lönd tóku þátt að þessu sinni en Georgía sneri aftur til keppni á meðan Andorra, Tékkland, Ungverjaland og Svartfjallaland hættu keppni. Litáen hafði upphaflega tilkynnt um að landið myndi ekki taka þátt þetta árið en var seinna á meðal þeirra 39 landa sem staðfestu þátttöku sína hjá EBU.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2010 | |
---|---|
Share the Moment | |
Dagsetningar | |
Undanúrslit 1 | 25. maí 2010 |
Undanúrslit 2 | 27. maí 2010 |
Úrslit | 29. maí 2010 |
Umsjón | |
Vettvangur | Telenor Arena Ósló, Noregur |
Kynnar |
|
Framkvæmdastjóri | Svante Stockselius |
Sjónvarpsstöð | Norsk rikskringkasting (NRK) |
Vefsíða | eurovision |
Þátttakendur | |
Fjöldi þátttakenda | 39 |
Frumraun landa | Engin |
Endurkomur landa | |
Taka ekki þátt | |
Kosning | |
Kosningakerfi | Hvert land gefur sett af 12, 10, 8–1 stigum til tíu laga. |
Sigurvegari | Þýskaland Lena |
Sigurlag | „Satellite“ |
2009 ← Eurovision → 2011 |